Eldur og brennisteinn

Eldur og brennisteinn

Download on the App Store

Eldur og brennisteinn episodes

  • Í skugga sögunnar 1989: Alltaf sama fokking kjaftæðið
    Vegna fjölda áskoranna er hér hægt að nálgast þátt þar sem Eldur og brennisteinn fara yfir
    hvað á daga þjóðarinnar dreif árið 1989. Þessi þáttur var tekinn upp sl. sumar en var ekki settur á netið (vegna annarskonar áskoranna). Einnig hefur þáttur um árið 1984 verið birtur og hægt að finna hann með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan.
    1 hr 6 min
  • Á hvaða plánetu er Þjóðhátíðarnefnd?
    Hvað er í gangi hjá þessari Þjóðhátíðarnefnd? Búa þau í einhverju lala landi? Metoo-bylgjan eru náttúruhamfarir sem ákveðinn hluti þjóðarinnar virðist ekki vilja taka eftir. Eldur og brennisteinn veltir fyrir sér málunum frá hinum ýmsu hliðum. Eldur og brennisteinn er einnig á helstu hlaðvarpsveitum. BYKO býður upp á þáttinn.
    51 min
  • Íslendingar þola nefnilega ekki framapotara
    Íslendingar þola flestir ekki framapotara, sama hvers kyns potarinn er. Testalausu karlfeministarnir Heiðar og Snæbjörn ræða Sjálfstæðisflokkinn, aðallega sjálfstæðiskonur, sem hafa farið mikinn í vikunni. BYKO býður upp á Eld og brennistein.
    55 min
  • Ófarir Íslendinga í Ástralíu kættu Moggamenn
    Í lok sjöunda áratugarins freistuðu margir Íslendingar gæfunnar og fluttu búferlum í sólina í Ástralíu. Lífið þar var þó ekki tekið út með sældinni og bjuggu margir landar okkar þar við kröpp kjör. Margir komu heim með skottið á milli lappanna og að sjálfsögðu hlakkaði í Staksteinum Morgunblaðsins enda Ísland, undir styrkri stjórn Sjálfstæðisflokksins, best í heimi. Þetta er brot úr nýjasta þætti Elds og brennisteins: Í skugga sögunnar, þar sem Heiðar og Snæbjörn taka árið 1971 fyrir. Hægt er að hlýða á allan þáttinn með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan.
    14 min
  • Atvinnuástandið - Enginn vill skítadjobb á skítakaupi
    Atvinnuveitendur kvarta undan því að atvinnulausir vilji ekki taka illa borguðu skítadjobbin þeirra. Þetta er brot úr nýjasta þætti Elds og brennisteins, hægt er að hlýða á hann allan með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan. BYKO býður upp á þáttinn.
    10 min
  • Vikan þar sem áhrifavaldarnir misstu kúlið
    Það ætlaði allt um koll að keyra þessa vikuna hjá áhrifavöldunum. Hnefasamlokur og voodoo-dúkkur. Heiðar og Snæbjörn velta fyrir sér og afbyggja það sem fyrir augu bar. BYKO býður upp á Eld og brennistein.
    1 hr

About Eldur og brennisteinn

From the publisher's feed

Heiðar Sumarliðason og Snæbjörn Brynjarsson eru léttir á bárunni og taka á málefnum líðandi stundar, sem og fortíðar. Ekkert er þeim óviðkomandi og „hot take“ eru þeirra ær og kýr.