Gagnarök

Email herferðir árið 2023 - virka þær ennþá?


Listen Later

Í þessum þætti af Gagnarök ræða Ómar, Ebbi og Arnar the original gangster í markaðsmálum - email herferðir.  Virka email herferðir ennþá árið 2023? Í þættinum ræða þeir félagar hvernig er hægt að nýta gögn, sjálfvirknivæðingu og gervigreind í bland við góða textasmíði og strategíu til að ná miklum árangri með email herferðum.

Í þættinum köfum við ofan í:

  • Hvað einkennir email herferðir?
  • Má ég senda email á hvern sem er?
  • Ráðleggingar fyrir árangursríkar email herferðir
  • Hvernig mælum við árangur?
  • Gervigreind og email herferðir


UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.

Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.

Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

GagnarökBy Digido