Emma Sandor fæddist í Ungverjalandi árið 1863. Hún fékk góða tónlistarmenntun og byrjaði ung að semja tónlist, en er þó þekktari fyrir samband sitt við önnur tónskáld, einkum þó Zoltán Kodály sem hún giftist árið 1910. Tónskáldin Béla Bartók og Ernst von Dohnanyi voru einnig góðir vinir hennar, Bartók tileinkaði henni Rapsódíu sína ópus 1 fyrir píanó og Dohnanyi samdi tilbrigði við stef eftir hana. Í þættinum "Á tónsviðinu" verður flutt tónlist eftir Emmu sjálfa og tónverk henni tengd eftir Bartók, Dohnanyi og Kodály.