Fyrsti þáttur af þremur.
Í þáttunum er rætt við nokkra íbúa á Hrafnistu í Hafnarfirði og Reykjavík, sem fæddir á fyrri hluta síðustu aldar. Þau rifja upp bernskuminningar frá æskustöðvunum og segja einnig frá hvernig jólahaldi var háttað á þeirra heimilinum.
Í fyrsta þætti er rætt við Guðbjörgu Svövu Eysteinsdóttur og Sigurð S. Waage. Við heyrum meðal annars um harða lífsbaráttu í afskekktri sveit og hvernig upplifun það var fyrir 10 ára dreng þegar breski herinn kom til Reykjavíkur.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir.