Jólaþættir Rásar 1

Eplailmur og sortulyng nr. 2


Listen Later

Annar þáttur af þremur. Í þáttunum er rætt við nokkra íbúa á Hrafnistu í Hafnarfirði og Reykjavík, sem fæddir eru á fyrri hluta síðustu aldar. Þau rifja upp bernskuminningar frá æskustöðvunum og segja einnig frá því hvernig jólahaldi var háttað á þeirra heimilum. Í öðrum þætti er rætt við þau Sesselju Níelsdóttur og Ársæl Egilsson. Við heyrum meðal annars frásagnir um hversu miklu máli selir og rekaviður skiptu í sveitinni hjá Sesselju, allt var nýtt og ekkert fór til spillis. Heimilið var þvegið hátt og lágt á laugardögum og gólfið skúrað með sandi og sápu. Á Bíldudal gerðist Ársæll mjólkurpóstur 12 ára gamall og fór svo á sjóinn strax eftir fermingu. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Jólaþættir Rásar 1By RÚV