Rokkland

Eru einhver góđ lög á ţessari plötu?


Listen Later

Lifun í 45 ár -
Áriđ 2009 gaf SENA út bók sem heitir 100 bestu plötur Íslandssögunnar. Ţeir sem skrifuđu voru Jónatan Garđarsson og Arnar Eggert Thoroddsen og bókin fjallar um 100 bestu hljómplötur Íslandssögunnar. Listinn sem ţeir unnu eftir var settur saman af stórum hópi fólks úr íslenska músík-bransanum og međ kosningu almennings. Ágćtis byrjun međ Sigur Rós frá árinu 1999 lenti í fyrsta sćti á ţessum lista en í öđru sćti er platan Lifun međ hljómsveitinni Trúbrot sem kom út 29. Júní áriđ 1971. Hér er topp 10 listinn:
1. Ágćtis byrjun ? Sigur Rós
2. Lifun ? Trúbrot
3. Á bleikum náttkjólum ? Megas & Spilverk ţjóđanna
4. Hinn íslenzki ţursaflokkur ? Ţursaflokkurinn
5. Sumar á Sýrlandi ? Stuđmenn
6. Debut ? Björk
7. Gling Gló ? Björk & Tríó Guđmundar Ingólfssonar
8. Ísbjarnarblús - Bubbi Morthens
9. Međ suđ í eyrum viđ spilum endalaust ? Sigur Rós
10. Sturla ? Spilverk ţjóđanna
Lifun verđur 45 ára núna í sumar og af ţví tilefni voru haldnir tónleikar í Eldborg fyrir skemmstu ţar sem platan var spiluđ í heild sinni af landsliđi tónlistarmanna og söngvara í bland önnur lög Trúbrots. Sérstakir gestir voru ţeir Magnús Kjartansson og Gunnar Ţórđarson Trúbrotsmenn og Shady Owens sem var fyrsta söngkona hljómsveitarinnar Ţetta verđur endurtekiđ nćsta laugardag og ţá hljóđritađ fyrir Rás 2. Hér má kynna sér ţađ betur.
En fyrir 25 árum síđan, um páskana, var haldiđ upp á 20 ára afmćli Lifunar međ ţremur ţáttum hér á Rás 2. Ţćr Andrea Jónsdóttir og Lísa Pálsdóttir sáu um ţá ţátagerđ og Rokkland í dag er ađ miklu leyti byggt á Ţessum 25 ára gömlu ţáttum ? međ góđfúslegu leyfi ţeirra Lísu og Andreu.
Viđ heyrum alla liđsmenn Trúbrots segja frá Lifun en í dag eru ţrír af ţeim fallnir frá - ţeir Karl Sighvatsson orgelleikari, trommarinn Gunnar Jökull og bassaleikarinn og söngvarinn Rúnar Júlíusson. Međ ţeim voru í Trúbrot á Lifunartímanum ţeir Gunnar Ţórđarson (gítar, söngur ofl) og Magnús Kjartansson (söngur og píanó). Ţetta voru ungir menn, stútfullir af metnađi og ţađ skilađi sér á Lifun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

RokklandBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Rokkland

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners