Fjallað um febrúarmánuð í tónlist og skáldskap. Meðal tónsmíða sem fluttar verða í þættinum eru „Vetrarmorgunn" eftir Jón Ásgeirsson, kaflar úr verkinu „Febrúarhiminn" eftir Kolbein Bjarnason, „Febrúar: Karnival" úr píanóverkinu „Árstíðirnar" eftir Pjotr Tsjaíkovskí og „Febrúar" úr píanóverkinu „Árið" eftir Fanny Mendelssohn Hensel. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Guðni Tómasson og Anna Marsibil Clausen.