Sign up to save your podcasts
Or

Júlía og Lára eru Fillifjónkur. Vinkonur í sitthvorri heimsálfunni hringjast á og ræða lífið í stórborginni, spákonur og rottur sem hafa hertekið New York og hvernig Håkon Hellström þerrar tár týndra kvenna í Stokkhólmi sem kunna bara sænsku úr Stellu í Orlofi og eiga ekki brauð. Júlía Margrét er skáld sem lærir kvikmyndahandritagerð í New York, Lára er blómabóndi í þykjustu sjálfsþurftarbúskap og vinnur við að varðveita menningarminjar í Stokkhólmi.
Þær ræða um Fillífjónkuna og aðra múmínálfa, bíómyndir, myglusveppi í gömlum húsum, kynvitund marglytta og spila brot úr lögum sem hafa bjargað þeim í gegnum erfiðar hindranir sem mæta eilífðarunglingum í stórborgum.
Í fyrsta þættinum er fjallað um flutninga á milli heimsálfa, gulu rósina sem óx á bleikum rósarunna, bræðurna Hákon og beikon og spiluð brot úr lögum um rigninguna í London og glaðlegt froðurokk um skotárás í bandarískum grunnskóla.
By AlvarpiðJúlía og Lára eru Fillifjónkur. Vinkonur í sitthvorri heimsálfunni hringjast á og ræða lífið í stórborginni, spákonur og rottur sem hafa hertekið New York og hvernig Håkon Hellström þerrar tár týndra kvenna í Stokkhólmi sem kunna bara sænsku úr Stellu í Orlofi og eiga ekki brauð. Júlía Margrét er skáld sem lærir kvikmyndahandritagerð í New York, Lára er blómabóndi í þykjustu sjálfsþurftarbúskap og vinnur við að varðveita menningarminjar í Stokkhólmi.