Markmannshanskarnir hans Alberts Camus

Fjórði þáttur - Um fagurfræði kappleikjalýsinga

11.11.2017 - By RÚVPlay

Download our free app to listen on your phone

Download on the App StoreGet it on Google Play

Í fjórða þætti Markmannshanskanna hans Alberts Camus skoðar Guðmundur Björn Þorbjörnsson samband fagurfræði og íþrótta. Hér er þó ekki verið að vísa í fagran líkamsburð íþróttamanna eða neitt þvíumlíkt, heldur fagurfræði frásagnarinnar, kappleikjaslýsinganna og sjálfrar umfjöllunarinnar um leikinn. Að baki hverri góðri sögu býr góður sögumaður, milliliðurinn ómissandi sem miðlar því sem þú skilur ekki, nú eða bara kennir þér eitthvað nýtt og færir þér nýja sýn á leikinn og jafnvel heiminn í leiðinni. Í þættinum ræðir Guðmundur við rithöfundinn Sigurbjörgu Þrastardóttur og sagnfræðinginn Stefán Pálsson.

Lesarar í þættinum eru Vera Illugadóttir og Atli Freyr Steinþórsson. Tæknimaður er Hrafnkell Sigurðsson

More episodes from Markmannshanskarnir hans Alberts Camus