Leiðsögumenn þurfa að kunna svör við ýmsu
Starf leiðsögumanna er á margan hátt skemmtilegt og fjölbreytt, en að sama skapi krefjandi. Leiðsögumenn þurfa að kunna góð skil á landi og þjóð, enda margvíslegar spurningar sem þeir fá í starfi.
Ingibjörg E. Jónasdóttir var gestur okkar í Föstudagsþætti N4. Hún sagði frá starfi leiðsögumanna og einnig námi fyrir verðandi leiðsögumenn.