Gagnarök

Góð ráð fyrir Facebook & Instagram herferðir


Listen Later

Í þessum þætti af Gagnarök ræða Ómar, Birkir og Ebbi góð ráð við að keyra herferðir á Facebook og Instagram (FB & IG). 

Erlendar birtingar hafa tekið fram úr innlendum birtingum á Íslandi og ljóst að mikilvægi þess að keyra skilvirkar og árangursríkar herferðir á stærstu miðlum landsins hefur aldrei verið mikilvægara.

Þeir félagar ræða sín á milli hvernig er best að nálgast slíkar herferðir út frá markhópum, efnissköpun, notendaupplifun og tæknilegum atriðum til að ná sem bestum árangri.

Í þættinum köfum við ofan í:

  • Hvaða markhópar eru á FB & IG?
  • Hvernig stillum við upp herferðum?
  • Hvað er mikilvægast að hafa í huga?
  • Hver eru helstu tips og tricks?
  • Hvernig mælum við árangur?


UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.

Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.

Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

GagnarökBy Digido