Gömlu mánaðaheitin sem notuð voru á Íslandi og öðrum Norðurlöndum fyrr á öldum heyrast stundum ennþá, einkum á þessum árstíma þegar þorri er genginn í garð og haldin eru þorrablót. Mánuðirnir 12 voru þorri, góa, einmánuður, harpa, skerpla, sólmánuður, heyannir, tvímánuður, haustmánuður, gormánuður, ýlir og mörsugur. Fluttar eru tónsmíðar og lesin ljóð sem snúast um gömlu mánuðina. Á meðal tónsmíðanna eru „Þorragaldur“ eftir Sigursvein D. Kristinsson, „Einmánuður“ eftir Pál Pampichler Pálsson og „Vorljóð á Ýli“ eftir Jórunni Viðar. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.