Gagnarök

Google Analytics 4 breytingin sem mun kollvarpa vefsíðumælingum 1 júlí 2023


Listen Later

Í þessum þætti af Gagnarök ræða Ómar og Arnar þá meiriháttar breytingu sem mun eiga sér stað hinn 1 júlí 2023 þegar Google mun slökkva á núverandi útgáfu af vefsíðumælingartólinu Google Analytics og alfarið færa þjónustuna yfir í nýjustu útgáfuna Google Analytics 4. 

Google Analytics er mest notaða vefsíðumælingartól í heiminum og flestar vefsíður á Íslandi nota tólið til mælinga. Þetta er ein stærsta breyting síðari ára og ef ekki er brugðist rétt við mun hún mögulega skaða rekstur vefsíðueigenda og fyrirtækja sem treysta á tólið til mælinga en jafnframt búa til tækifæri fyrir þau sem bregðast rétt við.

Í þættinum köfum við ofan í:

  • Hvaða þýðingu hefur þessi breyting?
  • Hvað er nýtt í Google Analytics 4?
  • Hvað þarf að gera til að halda mælingum áfram?
  • Hvaða tækifæri eru í stöðunni?
  • Hvaða önnur vefsíðumælingartól eru til?


UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.

Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.

Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

GagnarökBy Digido