Ţađ er víđa og alls stađar sem músíkin verđur til og gestir Rokklands í dag koma međal annars frá Grafarvogi, Hallormsstađ og Liverpool.
Viđ heyrum í seinni hluta ţáttarins viđtal viđ ţá Kaktus og Gulla úr hljómsveitinni Fufanu (Grafarvogur) sem er ađ gera ţađ nokkuđ gott um ţessar mundir. Upphaflega hét sveitin Captain Fufanu og kom ţannig fram á Músíktilraunum fyrir nokkrum árum ? spilađi ţá einhverskonar Raf-Popp, en í dag er Fufanu rokkband, kuldalegt rokkband og sendi skömmu fyrir jól frá sér fyrstu plötuna sem heitir Few more days to go.
Sveitin er á leiđinni í tónleikaferđalag til Bretlands, spilađi međ Blur í Hype Park síđasta sumar og var eitt af böndunum sem David Fricke blađamađur Rolling Stone mćlti međ eftir síđustu Airwaves hátíđ.
Axel Flóvent (Hallormsstađur) heimsótti std. 12 á Rás 2 síđasta föstudag ? ţar spilađi hann međ hljómseitinni sinni ţrjú lög, en viđ fáum fjögur í dag. Axel er fulltrúi Rásar 2 á Eurosonic Festival í Hollandi um nćstu helgi.
Ţađ sáu margir skemmtilega ţćtti um Cillu Black frá Liverpool í sjónvarpinu (RÚV) á dögunum. Cilla syngur nokkur lög í Rokklandi dagsins.
Unga breska tónlistarkonan Soak tekur lagiđ, sem og Savages og svo minnumst viđ Lemmy Kilmister, foringja ? bassaleikara og söngvara ţungarokkshljómsveitarinnar Motörhead sem féll frá á dögunum. Hann lifđi hratt alla tíđ - ótrúlegt hvađ hann entist. Hann varđ sjötugur á ađfangadag, fékk ađ vita ađ hann vćri međ krabbamein á annan í jólum, og ţremur dögum síđar var hann fallinn. R.I.P.