Heima er best, segir útsaumurinn og ekki lýgur hann. Fyrirbærinu „heima" fylgja hinsvegar ótal tilfinningar og að „eiga heima" einhversstaðar snýst ekki bara um búsetu heldur það að tilheyra. En hvað ef fólk gerir ósjálfrátt ráð fyrir því að þú sért útlendingur? Grár köttur tekur fyrir hugtakið „heima" útfrá sögu leikkonunnar Maríu Thelmu Smáradóttur.
Umsjón: Anna Marsibil Clausen.