Í þessum þætti er fjallað um börn, eða nánar tiltekið hvernig þau verða til. Það ferli á að vera skemmtilegt, allavega svona í upphafi, en þó við eyðum mikilli orku í að koma í veg fyrir barneignir snemma á lífsleiðinni reynist það stundum þrautin þyngri að búa til börn þegar upp er staðið. Í þættinum heyrast þrjár sögur af ófrjósemisvanda, um drauma sem virðast aldrei ætla að rætast og líkama sem bregðast.
Umsjón: Anna Marsibil Clausen.