Gull og grænir skógar

Gull og grænir skógar

Download on the App Store

Gull og grænir skógar episodes

  • Hrekkjavaka, uppskerulok og óhugnanlegur gróður
    Gróðurríkið spilar stórt hlutverk í hrekkjavöku og ýmissi hjátrú og hefðum sem henni tengjast. Í þættinum er hrekkjavaka sett í samhengi við uppskerulok, trúarsiði, Allra heilagra messu, leiki, nornir og galdrajurtir. Rætt er við Vilmund Hansen og Steinar Björgvinsson um alrúnu, gaddepli, eitraðar plöntur af náttskuggaætt, grasker, vofuleg tré eins og alaskasýpris og þallir, sem og kjötætuplöntur og sníkjuplöntur úr íslensku flórunni. Viðmælendur: Vilmundur Hansen og Steinar Björgvinsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    52 min
  • Miklabraut, Hlíðar og Holt: Einkenni, gróður og brautryðjendur
    Í þættinum er dvalið við Miklubraut og Hringbraut þar sem linditré og hin sögufræga Hringbrautarrós koma við sögu. Staldrað er við Klambratún og Skaftahlíð þar sem fyrsti landslagsarkitekt landsins, Jón H. Björnsson, átti heima. Rætt er við sérfræðinga um einkenni Hlíða og Holts. Staldrað er við funkish-stíl Norðurmýrar og litið er inn í vel lukkaða garða Búsetaíbúðanna við Einholt, Þverholt og Háteigsveg þar sem 150 plöntutegundir njóta sín. Húsin þykja vel heppnuð en arkitektarnir voru Guðrún Ingvarsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. Rætt er hvorutveggja um gróin hverfi og nýstárlegri verkefni sem setja má í samhengi við þéttingu byggðar á gömlum iðnaðarreitum. Viðmælendur: Anna Dröfn Ágústsdóttir, Þráinn Hauksson og Hermann Georg Gunnlaugsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    55 min
  • Hellisgerði: Gróður og saga
    Ráfað er um Hellisgerði í fylgd góðra gesta. Rætt er um serbíugreni, beyki, hrossakastaníu, deigli og fleira. Rýnt er í ræktunarsögu þessa gamla garðs og hlutverks hans sem skemmtigarðs. Staldrað er við klifurhortensíu og gráösp. Óvænt saga af samskiptum manna og álfa við jaðar garðsins er opinberuð. Viðmælendur: Jónatan Garðarsson, Anton Helgi Jónsson og Steinar Björgvinsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    53 min
  • Gróður og yfirnáttúran í náttúrunni í Hafnarfirði.
    Í þættinum er ráfað í kringum Hamarinn í Hafnarfirði og staldrað sérstaklega við Brekkugötu og Austurgötu. Rætt er um yfirnáttúru og þær umgengnisreglur og bannhelgi sem hvílir á vissum stöðum á þessu svæði. Í senn er staldrað við álfakonungshöllina sjálfa, svartálfabyggðir, Fríkirkjuna í Hafnarfirði og síðast en ekki síst merkan gróður, eins og Bogsýrenu ‘Mjallhvít’ og gráöspina frægu sem valin var tré ársins 2006 og er í eigu Hvals hf. Viðmælendur: Halldóra Pálmarsdóttir, Steinar Björgvinsson, Símon Jón Jóhannsson og Jónatan Garðarsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    50 min
  • Göngutúrar langir og stuttir
    Í þættinum er fjallað sérstaklega um göngutúra, rölt og labb. Göngutúrar eru skoðaðir sem ferðamáti og lífsstíll – en líka sem hversdagslegt fyrirbæri. Rætt er um áhrif labbs á umhverfi og menningu. Dæmi eru tekin um heimspekinga og rithöfunda sem nýttu sér göngutúra til innblásturs og þekkingarsköpunar en einnig er rætt við fólk sem fer í göngutúra vegna vinnu, til dæmis við fræsöfnun eða söfnun græðlinga. Viðmælendur nýta sér sumir hverjir göngutúra til kennslu og aðrir hafa farið í göngutúr daglega í áraraðir – og aldrei misst úr dag. Viðmælendur: Steinar Björgvinsson, Rósa Bjarnadóttir, Jón Ásgeir Kalmansson og Gunndís Ýr Finnbogadóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    50 min
  • Litur í lífið: Haustlaukar, haustlitir og garðhúsið

    Í þættinum er fjallað um úrval litríkra haustlauka og gróðursetningu þeirra sem fer fram í september og október og jafnvel lengur. Rætt er um mismunandi tegundir haustlauka og eiginlega þeirra. Vikið er að haustlitunum sem skarta sínu fegursta um þessar mundir. Að lokum er kastljósinu bent að garðhúsunum sem hafa sprottið upp að undanförnu, eins konar notaleg gróðurhús í garðinum til að njóta hans lengur en ella.


    Viðmælendur: Sverrir Gauti Svavarsson, Steinar Björgvinsson og Bryndís Björk Reynisdóttir

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    52 min
  • Tákn rósarinnar: Rósir og sérstaða rósaættarinnar

    Í þættinum er fjallað um táknheim rósarinnar meðal annars út frá sögunni, hversdagsmenningu og pólitík. Rifjaðir eru upp atburðir úr fortíðinni þar sem rósir leika stórt hlutverk eins og sögufrægar rósblaðarigningar. Í seinni hluta þáttarins er kastljósinu beint sérstaklega að rósaættinni sem er fjölbreytt og finnst meðal annars í íslensku flórunni. Rætt er um runnamururnar sem skarta sínum oftast gulu blómum langt fram eftir hausti sem og þjóðarblómið holtasóley, maríustakk, fjalldalafífil, Ulleungreynir/Pálmareynir ‘Dodong’, hindber, brómber, hegg og fleira úr rósaætt. 

     

    Viðmælendur: Sverrir Gauti Svavarsson, Steinar Björgvinsson og Steinunn Garðarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    51 min
  • Rósarækt og hinn harðgerustu yrki fyrir íslenskar aðstæður

    Í þættinum er fjallað um þá tegund blóma sem hefur heillað okkur mannfólkið hvað mest og lengst – rósir. Rætt er um táknfræðilegt hlutverk þeirra en þó allra mest um rósarækt á Íslandi og þau yrki rósa sem þykja hvað harðgerðust. Slíkar rósir má sjá á umferðartorgum víða og nálægt sjávarsíðunni enda eru margar þeirra vind- og saltþolnar. Minnst er á brautryðjendastarf Jóhanns Pálssonar fyrrverandi garðyrkjustjóra. Einnig er fjallað um rósir sem notaðar eru í skreytingar og muninn á þeim og garðrósum. Rætt er við rósaræktendur og meðlimi í Rósaklúbbnum.


    Viðmælendur: Hjörtur Þorbjörnsson og Steinar Björgvinsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    52 min
  • Ísland á tertíer og ísöld: Gróðurvendingar og nýtt upphaf íslensku flórunnar.

    Í þættinum er fjallað um gróður á Íslandi á öldunum fyrir ísöld þegar loftlag var hlýrra eða á hinu svokallaða tertíer-tímabili jarðsögunnar. Ýmsar minjar frá þeim tíma sýna að hér á landi uxu á tegundir sem garðeigendur dagsins í dag leitast við að koma á legg. Rætt er um hvaða afleiðingar kólnunin rétt fyrir ísöld hafði og þær breytingar sem verða þegar siglt er inn í kvarter-tímabil jarðsögunnar sem einkennist af hitasveiflum og tilkomu mannsins. Fjallað er um hvaðan tegundirnar komu eftir ísöld og mögulega hvernig þær námi land – sem og hvaða tegund hefði mögulega geta lifað af ísöld á jökulskerjum ef það var raunin. 


    Viðmælendur: Brynhildur Magnúsdóttir, Þráinn Hauksson, Steinar Björgvinsson og Steinunn Garðarsdóttir. 

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    47 min
  • Vesturbæjarvíðir, Schierbeck–reynirinn og garðfuglagróður.

    Í lokaþætti þáttaraðarinnar er fjallað um sögufræg tré en einnig gróður sem garðfuglar geta notið góðs af. Rætt er sérstaklega um hlíðaramal í samhengi við fuglafóðrun en runninn hefur einnig notið vinsælda hjá mönnum. Meginþorri þáttarins fjallar um sögufræ tré en staldrað er við Schierbeck-reyninn sem er silfurreynir og finna má í Fógetagarðinum við Aðalstræti. Þá er einnig rætt um gljámispil sem stóð þar og er einnig kenndur við Schierbeck landlækni. Að lokum er kastljósinu beint að vesturbæjarvíði og sögu hans sem er hvergi nærri lokið.


    Viðmælendur: Ragna Árnadóttir, Magnús Björnsson, Steinar Björgvinsson og Þráinn Hauksson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    55 min

About Gull og grænir skógar

From the publisher's feed

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.

Í þáttunum úr smiðju Rásar 1 er fræjum sáð og fróðleik um hverskyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði - og…