Heimilislausar konur og aðrar konur í vímuefnaneyslu eru jaðarsettur hópur sem mætir miklum fordómum í íslensku samfélagi. Þær standa höllum fæti þegar þær verða fyrir ofbeldi og standa frammi fyrir því að þurfa að leita aðstoðar hjá lögreglunni. Aðferðir þeirra til að eiga fyrir næsta skammti eru oft fordæmdar og konur í vímuefnaneyslu eru gagnrýndar harðlega fyrir að geta ekki séð um börn sín. Hafrún Elísa Sigurðardóttir, sérfræðingur í skaðaminnkun hjá Rauða krossi Íslands, varð heltekin af málaflokki þessa jaðarsetta hóps þegar hún hóf sjálfboðaliðastörf í Konukoti árið 2017. Hún er gestur Kynstranna alla í dag.