Tónskáldið Georg Friedrich Händel fæddist árið 1685 í borginni Halle í Þýskalandi og dó árið 1759 í Lundúnum, höfuðborg Englands. Aðeins ári eftir andlát hans kom út ævisaga hans eftir John Mainwaring. Þar kemur fram að á bernskuárum Händels hafi faðir hans verið mótfallinn því að hann legði stund á tónlist og bannað honum að snerta nokkurt hljóðfæri. Händel litla tókst samt að fela lítið klavíkord uppi á háalofti og æfði sig á það á næturnar þegar hitt fólkið svaf. Nýlega kom út geislaplata sem ber heitið "Händel´s Attick" eða "Háaloftið hans Händels". Þar leikur Julian Perkins á klavíkord tónverk sem Händel litli gæti hafa spilað á háaloftinu. Í þættinum "Á tónsviðinu" verður meðal annars leikin tónlist af þessum hljómdiski og koma við sögu tónskáld eins og Wolfgang Ebner, Johann Caspar Kerll og Friedrich Wilhelm Zachow, en hinn síðastnefndi varð kennari Händels þegar faðir hans leyfði honum loksins að stunda tónlistarnám. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.