Á tónsviðinu

Hanukka


Listen Later

Hin gyðinglega hátíð Hanukka, sem kölluð hefur verið ljósahátíð á íslensku, hefst við sólarlag 10. desember og henni lýkur 18. desember. Hátíðin er haldin til að minnast þess þegar musterið í Jerúsalem var endurvígt á 2. öld f. Kr. eftir að Júdas Makkabeus og uppreisnarlið hans höfðu unnið sigur á Selevkídum, en þeir höfðu bannað Gyðingatrú og vanhelgað musterið. Flutt verður tónlist sem tengist ljósahátíð Gyðinga, þar á meðal söngvar eftir Solomon Ancis, Flory Jagoda og Chaim Ritterband. En einnig er til tónverk eftir kristið tónskáld sem fjallar um sigur Makkabea: óratórían „Júdas Makkabeus“ eftir Georg Friedrich Händel. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Anna Marsibil Clausen.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV