Happy Hour

Happy Hour

By VicemanSociety & Culture
Download on the App Store

Happy Hour episodes

  • 73. Snædís Xyza Mae Jónsdóttir - Kokkalandsliðið, keppnis matreiðsla ofl.
    Í þessum Comeback þætti af Happy Hour spjallaði ég við Snædísi, fyrirliða kokkalandsliðsins.
    Hæfileikarnir í matargerð leyna sér ekki og hafa án efa komið henni langt enda er hún í dag þjálfari Kokkalandsliðsins og hefur unnið sig þar upp undan farin ár.
    Það eru samt ekki bara hæfileikarnir sem hafa komið henni á stall þeirra bestu í matreiðslu, að baki liggur mikill tími, metnaður, ástríða í bland við vinnusemi. fórnir, dass af þrjósku og mikið keppnisskap.
    Upphafsstef: Prikó - ADHD
    Styrktaraðilar: Fentimans & Töst
    IG @theviceman
    1 hr 5 min
  • Gísli Matt - SLIPPURINN 10 ára ofl - 72
    Í þessum þætti átti ég frábært spjall við Gísla Matt sem er einn áhrifamesti kokkur landsins þegar kemur að Íslenskri matargerð. Gísli rekur veitingastaðinn SLIPPURINN í Vestmannaeyjum og opnaði nýverið systur staðinn NÆS
    Ef þú hefur áhuga á matargerð, drykkjargerð, sjálfbærni, hráenfum framtíðarinnar og góðu bransaspjalli þá ættir þú að hlusta á þennan þátt.
    Ekki gleyma að fylgja mér á instagram: @theviceman
    1 hr 44 min
  • Jacob & Bo - Sparkling Tea - 71
    Í þessum þætti átti ég gott spjall við þá Jacob og Bo frá Sparkling Tea.
    Óhætt er að segja að Sparkling Tea hafi slegið í gegn á Íslandi enda frábær freyðandi drykkur sem fáanlegur með og án áfengis.
    Hvað er Sparkling tea? hvernig er það búið til? og hvernig varð hugmyndin að þeirri vöru sem hún er í dag?
    Því verður öllu svarað og meira til í þessum þætti.
    Ekki gleyma að fylgja mér á instagram: @theviceman
    1 hr 8 min
  • Gregory Buda frá Dead Rabbit NY - 70
    Í þessum þætti átti ég frábært spjall við Gregory Buda sem er Director of education hjá Dead Rabbit í New York. Dead Rabbit er á meðal bestu cocktail bara í heiminum.
    Greg átti leið hjá og ákvað að stoppa við á Íslandi til að halda fyrirlestur fyrir barþjóna landsins og er óhætt að segja að það hafi verið vel mætt. Að auki hélt hann Pop up ásamt Brennivín á kokteilabarnum Jungle.
    Ekki gleyma að fylgja mér á instagram: @theviceman
    1 hr 13 min
  • Erpur og edrúmennskan - 69
    Já þetta er rétt. Í þættinum ræða Erpur og Viceman um edrúmennskuna ásamt því að drekka óáfenga kokteila.
    Meira um vörurnar sem voru smakkaðar má finna á www.akkurat.is
    Endilega fylgið @theviceman á instagram
    1 hr 19 min
  • Sólrún Maria - Akkurat 0% - Í Fljótandi Formi - 68
    Sólrún María Reginsdóttir frá fyrirtækinu Akkurat var gestur Viceman í hlaðvarps þættinum Í Fljótandi Formi.
    Akkurat flytur inn drykki sem innihalda 0% áfengi eins og bjór, léttvín & kokteila.
    Þátturinn er tilvalin fyrir alla sem hafa áhuga á góðum drykkjum og vilja fræðast meira um hvað sé í boði af 0% drykkjum á Íslandi í dag.
    1 hr 16 min
  • Kokteilar með Viceman & Wiseguy 1# - 66
    Þáttaröð þar sem barþjónarnir Andri og Valli (Viceman & Wiseguy) taka fyrir sögu og staðreyndir fimm mismunandi kokteila í hverjum þætti.
    Í þessum þætti var fjallað um eftirfarandi kokteila:
    - Jungle Bird
    - Long Island Icead Tea
    - Gin Gin Mule
    - White Lady
    - El Diablo
    Nánari umfjöllun má finna á www.viceman.is
    42 min
  • Halldóra Skúla - Mindset Coach - Fyrir Framan Barinn - 65
    Getum við unnið betur í okkur sjálfum til að veita betri þjónustu? Hvað veist þú um NLP?
    Ræddum líka um Heilsudrykki, samspil heilsu vs áfengi og margt fleira.
    Halldóra Skúla er Mindset Coach, NLP kennari og með gráðu í dáleiðslu og mætti í Happy Hour.
    Nánar má sjá á www.halldoraskula.com
    1 hr 6 min

About Happy Hour

From the publisher's feed

Hæ Andri Viceman hérna....