Á tónsviðinu

Haydn og Mozart


Listen Later

Í þættinum verður leikin tónlist eftir Joseph Haydn og Wolfgang Amadeus Mozart. Árið 1785 pantaði hljómsveit nokkur í París sex sinfóníur hjá Haydn og hafa þær verið kallaðar Parísarsinfóníurnar. Sumar þeirra hafa önnur viðurnefni að auki, til dæmis sinfónía nr. 83 í g-moll sem er kölluð „Hænan" út af stefi í 1. kafla sem þykir minna á hreyfingar hænu. Þessi sinfónía verður leikin í þættinum og einnig kafli úr strengjakvartett nr.17 í Es-dúr eftir Mozart, en það er einn af Haydn-kvartettunum svonefndu, sex kvartettum sem Mozart tileinkaði Haydn árið 1785, sama ár og Haydn samdi Parísarsinfóníurnar. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV