Hefnendurnir Gamli

Hefnendurnir Gamli

By Hefnendurnir GamliSociety & Culture
Download on the App Store

All Hefnendurnir Gamli episodes

  • Hefnendurnir 141 -Farðu Louie! Við erum að reyna að tala um Viggó Viðutan!
    Í nýjasta þætti Hefnenda ræða Hulkleikur og Ævorman um mögulegan stjörnuþríleik, dévítans Disneyvæðinguna, óskalistann sinn í myndasögusjónvarpi og ofurkonu að sparka í karlpung. Síðan þarf að ræða aðeins alvarlegri mál á alvarlegri nótum í nýja dagskrárliðnum Æi fokk, seriously? Þú líka?! Afhverju? Dísis fokking kræst hvað er að?!
    1 hr 17 min
  • Hefnendurnir 140 - Rotin Raddbönd (Live)
    Ævarúlfurinn og Hullvítið setjast á TwinPeaks-esque sviðið í hryllingsholunni Húrra og hljóðrita Live bloodcast fyrir framan áhorfendur sem eru fleiri en puttahnífar Freddys en færri en endurkomur Jasons. Þeir ræða byssuleysi grímuklæddra morðingja, sjálfstæð vélmenni og réttdræpar nasistazombíur. Ævar reynir að tala um örlög Corey Feldman en Hulla finnst það of hryllilegt fyrir þetta hryllings-special Hefnenda!
    1 hr 20 min
  • Hefnendurnir 139 - Ég vild'ég væri orðin lítil fluga!
    Ævar mætir eldsnemma í Hullbunkerinn og þeir ræða lélegustu endurgerð ársins, sumé kosningarnar og stórasta land í heimi, sumsé Asgard (Ekki Ásgarð því það er munur á Asgard og Ásgarði). Svo reyna þeir að fatta hvort 2049 sé klámvætt eða feminískt ár og svo koma auglýsingar. Og hvílíkar auglýsingar! Og meira. Ágætur þáttur sko.
    1 hr 4 min
  • Hefnendurnir 138 - Pabbafliss
    Hulli er með of bilaðan heila til að podcasta en Ævar kveikir samt á upptökutækinu og þeir tala um bókasafnsbiturð skrípasöguskálds, skyggn augu með heyrn, rasisma og hvernig kvikasilfur getur bjargað heiminum.
    1 hr 10 min
  • Hefnendurnir 136 - Ekki kúl
    Hulkleikur er með flensu og Ævorman kemur í heimsókn til að hressa hann við með rabbi um tilgangsleysi slagorðagríns, öfugþýðingar og andstöðurangstæðu, en líka aðeins um alla þessa káfandi kúkalabba í Hollívúdd.
    1 hr 18 min
  • Hefnendurnir 134 - Fanforum forarfen!
    Hefnendurnir babbla um danska hönnun í geimnum, stuðboltastelpu með mjaðmir, legsteinaletur og bestu kóngaræmurnar áður en þeir fara í spoileriffic greiningu á mömmumyndinni þarna sem er að gera allt vitlaust.
    1 hr 36 min
  • Hefnendurnir 133 - Jó(Pesci)kerinn
    Hulkleikur og ÆvorMan rökræða um allt sem skiptir máli. Þar á meðal Emmy verðlaunin, Scorsese Jókerinn, fráfallinn költ karakter, hrædda karlmenn í kvikmyndahúsum og margt fleira. Allt mjög marktækt og vestfirskt.
    1 hr 4 min