Heimili og skóli

Heimili og skóli

By Heimili og skóliParentingKids & Family
Download on the App Store

Heimili og skóli episodes

  • Það þarf þorp - Okkar heimur

    Í þessum þætti er rætt við Sigríði Gísladóttur og Þórunni Eddu Sigurjónsdóttur um Okkar heim.

    Okkar heimur er stuðningsúrræði fyrir börn sem eiga foreldra með geðrænan vanda. Úrræðið var sett á laggirnar vegna skorts á stuðning og fræðslu fyrir börn í þessari stöðu á Íslandi.  

    Sigríður og Þórunn Edda ræða um starfsemina, stöðuna á Íslandi í málaflokknum og ýmislegt fleira.  

    40 min
  • Það þarf þorp - Forvarnir og áhættuhegðun

    Spjall við Kára Sigurðsson, verkefnastjóra forvarna hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkur.

    Við spjöllum um áhættuhegðun barna og unglinga. Einnig ræðum við um forvarnir og gefum foreldrum og forsjáraðilum verkfæri til nýta með sínum börnum.

    47 min
  • Það þarf þorp - Skóli í skýjunum

    Spjall við Esther Ösp Valdimarsdóttir skólastjóra og tengilið farsældar í Ásgarðsskóla - skóla í skýjunum.


    Ásgarðsskóli er ekki hefðbundinn skóli en aðsóknin er mikil. Skólinn er búinn að stækka hratt á þeim þremur árum sem hann hefur starfað og er að stimpla sig inn sem frábær viðbót við skólakerfið okkar.

    55 min
  • Einhverfa og áskoranir

    Hvaða áskoranir þurfa einhverf börn að kljást við í skólanum? Hvað er að vera skynseginn? Hvað er skynvænn skóli? Er foreldrakulnun algeng? Er skóli án aðgreiningar að virka? Hvert er markmið menntunar?

    Þær Sara Rós Kristinsdóttir og Linda Björk Oddsdóttir settust niður með okkur og ræddu þær áskoranir sem einhverf börn kljást við í skólakerfinu. Þáttur sem enginn ætti að láta framhjá sér fara!

    48 min
  • Aðeins um: BeReal

    Í þessum þætti af Aðeins um: ræða Eyrún Eva Haraldsdóttir og Sigurður Sigurðsson, sérfræðingar hjá SAFT, um samfélagsmiðilinn BeReal. Hvers konar miðill er BeReal? Afhverju er hann svona vinsæll hjá ungu fólki? Hvað er jákvætt við hann og hvað ber að varast? Í þættinum er einnig rætt um hvað sé gott að ræða við börn og ungmenni þegar kemur að því að vera á BeReal.

    20 min
  • Aðeins um: Misskilning á netinu

    Í þessum þætti af Aðeins um: ræða Eyrún Eva Haraldsdóttir og Sigurður Sigurðsson, sérfræðingar hjá SAFT, um misskilning á netinu. Hvers vegna á misskilningur á netinu sér stað? Hvernig birtist hann? Hvað er hægt að gera til að koma í veg fyrir misskilning í stafrænum samskiptum? Í þættinum er einnig rætt um lyndistákn og þá misjöfnu merkingu sem fólk leggur í þau.

    20 min

About Heimili og skóli

From the publisher's feed

Á þessari rás eru hlaðvarpsþættir Heimilis og skóla. Meðal þátta er Það þarf þorp, Netöryggi á nýjum tímum og Siggi og Sigga Dögg nöldra um netið.