Heimsendir

Heimsendir

By Stefán Þór ÞorgeirssonSociety & CultureHistory
Download on the App Store

Heimsendir episodes

  • #157 Frá Alaska til Japan á skipi

    5.000 sjómílur, 15.000 eyjar, búrhvalir, höfrungar, túnfiskar og hreindýr. Allt undir einum hatti - Bering haf. Mikið ævintýri að baki og hér kemur ferðasagan fyrir ykkur að njóta. Ég sigldi frá Nome, Alaska til Osaka á 21 degi og þaðan áfram um suðvestur Japan í hátt í mánuð.

    36 min
  • #156 Beyglaðir bílar og búðingur úr baunum - Ferðasaga til Alsír

    Sumarið 2026 fórum við fjölskyldan í pílagrímsferð til Alsír. Mikið ævintýri, skert þarmaflóra, ónýtir bílar sem keyra um á ljóshraða. Í þessum þætti segi ég ykkur frá ferðinni, uppákomum og vandræðum, sem og menningarsjokki og góðu skapi margra heimamanna.

    Njótið vel! Fleiri ferðasögur á leiðinni <3

    58 min
  • #155 Gervigreindarspjall með Stefáni Atla (samstarfsþáttur)

    Í þessum samstarfsþætti með HEIMSENDA tekur Stefán Atli á móti gamla æskuvini sínum Stefáni Þór Þorgeirssyni — leikara, leiðsögumanni og hlaðvarpsstjóra Heimsenda. Leiðir þeirra lágu fyrst saman þegar þeir voru tíu ára gamlir og gerðu stuttmyndir undir merkjum M5 Studios í Flataskóla.

    Þeir ræða hvernig leiklistin og Japan mótuðu Stefán Þór, leikritið hans „Fyrirlestur um gervigreind“ sem sýnt var 13 sinnum, og hvað það felur í sér að vera bjartsýnn á framtíð gervigreindar. Umræðan er víðtæk og spennir allt frá bókum Harari og Kevins Kelly til sviðsmynda um heimsenda. Þá ræða þeir listir í markaðshagkerfi, sjálfkeyrandi Tesla-bíla og velta því fyrir sér hvort gervigreindin muni taka yfir bankakerfið árið 2030 — og hvort við myndum þá ekki bara fara í leikhús eins og venjulega.

    51 min
  • #154 Tai Chi Walking og örplast í öllu

    Hver kannast ekki við að rekast á Tai Chi Walking auglýsingar á YouTube? En af hverju á maður að verða massaður á göngutúrum? Af hverju er örplast í gosdósum? Loks, hvernig lifum við til 130 ára aldurs? Njótið vel!

    51 min
  • #153 Árið 2025 gert upp - Fjármál, heilsa og nýársheit

    Heldur seinn að gera upp síðasta ár en svona er lífið þegar maður er önnum kafinn, og það er kannski lúxusvandamál. Í þessum þætti skoða ég síðasta ár og nýársheitin sem ég strengdi, hvort þau stóðust, og hvernig þau höfðu áhrif á nýársheit þessa árs. Svo fer ég yfir nýlegar vangaveltur í fjármálum og heilsu, sem og alþjóðamálum. Njótið vel!

    39 min
  • #152 Ferðasaga til Japan 2025

    Ég er mættur aftur til Japan! Við fjölskyldan erum á ferðalagi um land hinnar rísandi sólar enn á ný og í þessum þætti fer ég yfir það sem á vegi okkar verður. Kostir og gallar eða þakklæti og það sem betur má fara. Hvernig blasir Japan við mér eftir eins árs fjarveru? Við skulum komast að því!

    1 hr
  • #151 Er óhollt að hlusta á hlaðvörp?

    We back! Mættur til baka, af miklu að taka. Í þessum þætti ræði ég síðustu vikur í mínu lífi - framleiðslu á barnaþáttum, sjóveiki um borð í skipinu og hlaðvarpsföstu sem ég tók fyrr í maí. Við skoðum hversu mikil hlaðvarpsneysla telst eðlileg og hvenær maður á ekki að hlusta á hlaðvörp.

    48 min
  • #149 Þórarinn Hjartarson

    Þórarinn Hjartarson er þáttastjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling og stjórnmálafræðingur. Í þættinum förum við um víðan völl og snertum meðal annars á upprisu Indlands, lýðfræðivandamálum Kína, persónulegum hindrunum, ágæti kapítalisma og framtíð Íslands.

    1 hr
  • #148 Frímann Gunnarsson

    Frímann er sjónvarpsmaður og stjórnmálafræðingur með próf frá London School of Politics. Hann hefur lengi prýtt skjái landsmanna en þættirnir hans hafa verið sýndir á Skjá Einum, Rúv og Stöð 2. Næstu helgi verður Frímann síðan á hvíta tjaldinu í Bíó Paradís. Í þessum þætti ræðum við námsárin, ljóðlistina, listaelítuna og hvort gott sé að blanda áfengi og svefntöflum.

    Þátturinn er í boði Bíó Paradís. Ef Egils Kristall er að hlusta má endilega bjóða mér spons enda drekk ég það eins og vatn.

    56 min

About Heimsendir

From the publisher's feed

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

More shows like Heimsendir

声动早咖啡 by 声动活泼

声动早咖啡

305 Listeners