Á tónsviðinu

Hin gömlu kynni


Listen Later

Hjá mörgum enskumælandi þjóðum er venja að syngja skoska þjóðlagið „Auld Lang Syne“ á gamlárskvöld á miðnætti og taka þá allir saman höndum. Hér á Íslandi er lagið þekkt undir heitinu „Hin gömlu kynni gleymast ei“, en þar er um að ræða þýðingu Árna Pálssonar á ljóði skoska skáldsins Roberts Burns. Í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 5. jan. 2017 kl. 14.03 verður lagið leikið í margs konar útsetningum, m.a. verður flutt spáný útsetning eftir Gerald Barry sem Ríkisútvarpið fékk senda frá Írska ríkisútvarpinu RTE. Einnig verður leikin útsetning eftir Ludwig van Beethoven og hljóðfærasveitin Kremerata Baltica leikur „Auld Lang Syne“-tilbrigði eftir Franz Waxman frá 1947. Þá verður sunginn Bræðralagssöngur skáta sem ortur er við þetta lag. Einnig verður flutt lagið sem við Íslendingar syngjum um áramótin „Nú árið er liðið“ og verður það sungið bæði á íslensku og færeysku. Lesari: Eiríkur Guðmundsson. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV