Hinir íslensku náttúrufræðingar

Hinir íslensku náttúrufræðingar

By Hið íslenska náttúrufræðifélagScienceNatural Sciences
Download on the App Store

Hinir íslensku náttúrufræðingar episodes

  • Hinir íslensku náttúrufræðingar - Þórunn Wolfram Pétursdóttir, doktor í umhverfisfræðum

    Þórunn Wolfram Pétursdóttir er doktor í umhverfisfræðum frá Landbúnaðarháskóla Íslands og sviðstjóri hjá Landgræðslunni. Hún hefur fjölbreytta starfsreynslu, m.a. sem héraðsfulltrúi hjá Landgræðslunni, sem aðstoðarmaður umhverfisráðherra, auk þess að hafa verið í rannsóknarnámsleyfi við eina af rannsóknarstofnunum framkvæmdarráðs Evrópusambandsins á norður Ítalíu. Henni er umhugað um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og endurheimt náttúrugæða og trúir á þverfræðilega nálgun til að ná árangri.

    49 min
  • Hinir íslensku náttúrufræðingar - Erna Sif Arnardóttir

    Erna Sif Arnardóttir er lektor við verkfræði- og tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. Hún leiðir stóran hóp alþjóðlegra vísindamanna í verkefninu "Svefnbyltingin" en verkefnið hefur hlotið einn stærsta styrk sem veittur hefur verið til rannsókna hér á landi úr Horizon 2020 rammaáætlun ESB fyir rannsóknir og nýsköpun. Erna Sif er líffræðingur að mennt og heillaðist að erfðafræði á menntaskólaárunum.

    33 min
  • Hinir íslensku náttúrufræðingar - Rannveig Guicharnaud, jarðvegsfræðingur

    Hvað eiga jarðvegur, Evrópusambandið og þríþraut sameiginlegt? Jú, þau hafa notið krafta Rannveigar Guicharnaud, jarðvegsfræðings. Hún lætur ekki landamæri eða tungumál stöðva sig og hefur sinnt margvíslegum verkefnum á sviði jarðvegsfræði, kortlagningu og samráðs. En Rannveig er einnig margfaldur Íslandsmeistari í þríþraut og hefur staðið á verðlaunapalli heima og erlendis í ófá skipti.

    45 min
  • Hinir íslensku náttúrufræðingar - Ólafur Ingólfsson, jarðfræðingur

    Ólafur Ingólfsson, jarðfræðingur, hefur farið víða til að stunda rannsóknir og vísindastörf en viðfangsefni hans eru einkum á sviði jarðsögu og jöklajarðfræði á heimskautasvæðunum. Hann hefur farið í leiðangra til Suðurskautslandsins og dvalið langdvölum á Svalbarða en hann hefur einnig stundað rannsóknir í Síberíu og Kalahari eyðimörkinni. Samt ætlaði Ólafur ekki að verða náttúrufræðingur í upphafi.

    59 min
  • Hinir íslensku náttúrufræðingar - Snorri Sigurðsson, líffræðingur

    Snorri Sigurðsson hefur um árabil starfað hjá Reykjavíkurborg að málefnum er snúa að náttúruvernd og líffræðilegri fjölbreytni í borgarlandinu. Hann sinnir jöfnum höndum margvíslegri fræðslu til íbúa borgarinnar og er þátttakandi í mótun stefnu og skipulags í Reykjavík. Um þessar mundir sinnir Snorri einnig verkefni í Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu sem snýr að nátturuminjaskrá og undirbúningi friðunar.

    29 min

About Hinir íslensku náttúrufræðingar

From the publisher's feed

Í hlaðvarpinu Hinir íslensku náttúrufræðingar hittum við íslenska náttúrufræðinga, kynnumst rannsóknum þeirra og störfum heima og erlendis, ástríðu þeirra fyrir náttúru og ævintýrum sem þeir hafa ratað í.

More shows like Hinir íslensku náttúrufræðingar

Íþróttavarp RÚV by RÚV

Íþróttavarp RÚV

0 Listeners