Tónskáldið Richard Wagner lauk við óperu sína „Tannhäuser“ árið 1845, en í henni er fjallað um þýska mansöngvarann Tannhäuser sem var uppi á 13. öld. Flutt verða lög og ljóð eftir hinn raunverulega Tannhäuser og aðra mansöngvara sem koma fram sem persónur í óperunni. Má þar nefna Wolfram von Eschenbach og Walter von der Vogelweide. Þeir voru uppi á 13. öld, eins og Tannhäuser, og í miðaldahandritum hafa varðveist skáldverk og lög eftir þá. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Anna Marsibil Clausen.