Á tónsviðinu

Hirðhljómsveit kjörfustans í Mannheim


Listen Later

Í þættinum er fjallað um Hirðhljómsveit kjörfurstans í Mannheim sem var ein besta hljómsveit Evrópu á 18. öld. Hún var meðal annars þekkt fyrir ýmsar nýjungar og talað var um Mannheim-crescendo og Mannheim-flugelda í tónlist. Af tónskáldum sem tengdust hljómsveitinni má nefna Johann Stamitz, Niccolo Jommelli og Franz Ignaz Beck. Wolfgang Amadeus Mozart kom til Mannheim og hlýddi á hljómsveitina árið 1777 og hún hafði mikil áhrif á hann. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðni Tómasson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV