Hjartans mál
Download on the App Store

Hjartans mál episodes

  • Hjartans mál 1/3: Hjartalag
    Í þessum þætti er fallað um hjartað út frá læknahugvísindalegu sjónarhorni og táknrænar rætur þess raktar til Egyptalands til forna, kínverskrar heimspeki og evrópskra miðalda. Viðmælendur: Sif Ríkharðsdóttir og Geir Sigurðsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    41 min
  • Geðveik mamma 3/3

    Hvernig höldum við að geðveikar mæður séu?


    Í þessum þriðja og síðasta þætti veltir Hera fyrir sér hugmyndum um góðar og slæmar mæður. Hún heldur áfram leitinni að rödd langömmu sinnar og við heyrum fleiri sögur mæðra úr samtímanum: Sögur um fordóma og ótta en líka hreinskilni og von. Geta nýjar raddir breytt gömlum viðhorfum?

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    31 min
  • Geðveik mamma 2/3

    Hvernig tölum við um veikindi sem við viljum helst ekki tala um?


    Í þessum þætti skoðar Hera hvernig þagnir, orð og fordómar móta skilning okkar á geðsjúkdómum.


    Við heyrum sögur annarra geðveikra mæðra og Hera heldur áfram að reyna að fylla í eyðurnar í sögu langömmu sinnar.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    29 min
  • Geðveik mamma 1/3

    Líf lítillar fjölskyldu á Akureyri umturnaðist einn daginn þegar ung móðir var send suður – suður á Klepp.


    Þegar langamma Heru var send suður á Klepp árið 1946 var amma hennar bara fjögurra ára. 80 árum síðar reyna þær í sameiningu að skilja hvað gerðist og hvers vegna enginn talaði um þetta. Í þessum fyrsta þætti tvinnast saman fjölskyldusaga, eigin reynsla Heru og spurningar um hvaða merkingu Kleppur hefur í samtímanum.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    30 min
  • Í upphafi var myndin 4/4: Kunnugleg kona á bókarkápu
    Hver var danska konan sem var um tíma gift þeim sem af mörgum er talinn merkasti myndlistarmaður íslensku þjóðarinnar? Áður en þau fluttu til Íslands hafði hún haslað sér völl sem rithöfundur í Danmörku. Eftir að þau skildu flutti hún frá Íslandi, ferðaðist víða um lönd, varð fyrirmynd þekktrar skáldsagnapersónu, lenti í málaferlum vegna skottulækninga og átti umfangsmikinn feril á ritlistarsviðinu. Viðmælandi í þættinum er Kolbrún Kjarval, listakona.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    42 min
  • Í upphafi var myndin 3/4: Maðurinn með hauskúpuna
    Hvernig var hægt að finna út hver var pípureykjandi maðurinn sem geymdi mannabein í herberginu sínu? Sögð er saga af reykvískum strák úr Skólastræti sem menntaðist í læknisfræði og tungumálum og gerðist héraðslæknir í Vestur-Indíum. Viðmælandi í þættinum er Inga Lára Baldvinsdóttir, sagnfræðingur.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    43 min
  • Í upphafi var myndin 2/4: Ljósmóðirin og listamennirnir
    Hvers vegna fór ung kona úr Vesturbænum, sem starfaði við bókhald hjá heildverslun, skyndilega til Kaupmannahafnar sumarið 1917? Hver urðu örlög hennar og hvers vegna fluttu tveir danskir listamenn til Íslands skömmu eftir seinni heimsstyrjöld? Viðmælandi í þættinum er Ari Karlsson, lögfræðingur.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    42 min
  • Í upphafi var myndin 1/4: Dæmd í vændishús
    Rakin er saga hótelstjóradóttur sem fæddist í Hafnarstrætinu í Reykjavík. Á unglingsárum sigldi hún til Kaupmannahafnar og lenti þar á refilstigum í strætum sem mörgum þóttu býsna vafasöm. Frá Danmörku flakkaði hún til fleiri landa, tókst á við leynilegt verkefni og komst ítrekað í kast við lögin. Viðmælandi í þættinum er Kristín Svava Tómasdóttir, sagnfræðingur.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    44 min
  • Hold 3/3

    Í þriðja þættinum af Holdi skoðar Brynhildur nokkrar auglýsingar um offitulausnir og ræðir við sérfræðinga með ólík sjónarhorn, þær Erlu Gerði Sveinsdóttur, sérfræðilækni í offitumeðferð, Töru Margréti Vilhjálmsdóttur félagsráðgjafa og líkamsvirðingarsinna og Elínu Vigdísi Guðmundsdóttur, formann SÁTTar, samtaka um átröskun og aðrar tengdar raskanir.


    Lesari í þættinum er Ævar Örn Jósepsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    40 min
  • Hold 2/3

    Sápan FatOff og megrunarkaramellurnar AYDS eru meðal umfjöllunarefna í öðrum þætti af Holdi. Brynhildur ræðir líka við þær Lindu Guðmundsdóttur og Ósk Gunnlaugsdóttur um reynslu þeirra af þyngdartapslyfjum og - aðgerðum. Ennfremur er fjallað um fitufordóma.


    ATH að í þættinum er komið inn á ýmislegt sem gæti reynst flókið fyrir þau sem hafa glímt við átröskun.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    43 min

About Hjartans mál

From the publisher's feed

Ólöf Gerður Sigfúsdóttir leggur upp í leiðangur um hjartað sem líffæri og menningarsögulegt fyrirbæri eftir að hafa sjálf upplifað skyndileg hjartveikindi. Hún rekur táknræna merkingu hjartans frá…