
Sign up to save your podcasts
Or


Fyrir þá sem vilja heyra eitthvað annað en kórónufréttir þá er Hjúpurinn kominn aftur eftir laaaaangt hlé! Við ræddum við frumkvöðulinn á bak við Reykjavík Tool Library, Anna Worthington de Matos, um munum á deilihagkerfi🤝 og hringhrásarhagkerfi♻️, DIY vinnustofur og Repair Café 🔧☕️, um aðgengi, frumkvöðlastarfið og fyrstu ljósaperu sögunnar💡 og margt fleiri en ekki síst um samfélagið og hugsjónina á bak við þetta frábæra framtak.
Ath. upptakan fer fram að mestu leyti á ensku.
Í nýjasta þætti Hjúpsins ræddum við um menningarlega fjölbreytni, hagsmunagæslu, nýsköpunarhakk, og þá fjölþættu vettvanga þar sem borgin og grasrótin koma saman til að knýja fram breytingar til batnaðar á sviði loftslagsmála. Gestir okkar þessu sinni voru þau Hrönn Hrafnsdóttir sérfræðingur hjá Reykjavíkburborg og Pétur Halldórsson, formaður Ungra umhverfissinna.
Við hvetjum hlustendur eindregið til þátttöku í Climathon nýsköpunarhakkið sem fer fram föstudaginn 25. október 2019! Frekari upplýsingar má finna á https://climathon.climate-kic.org/en/reykjavik.
Hvað er Extinction Rebellion og hvernig vilja þau breyta því hvernig við hugsum um loftslagsmál?
Við fengum til okkar þá Gísla Sigurgeirsson og Guðmund Ragnar Guðmundsson og ræddum um listina að láta handtaka sig, að finna gleðina í baráttunni og hvað það merkir í raun að vera róttækur (og hvernig það tengist—óbeint —rótargrænmeti)!
Verði ykkur að góðu...
Hvernig getum við látum peningana vinna fyrir okkur OG margfaldað ávinningin fyrir umhverfið í leiðinni? Hvaða kostir eru í boði fyrir þá sem vilja fjárfesta í grænni framtíð? Við vildum vita svarið og fengum því til okkar Kristínu Jónu Kristjánsdóttur og Brynjólf Stefánsson, starfsmenn Íslandssjóða, til að útskýra hvernig svokölluð græn skuldabréf virka og ræða hvort sjálfbærar, ábyrgar fjárfestingar séu að verða nýju trendin í fjármálaheiminum!
Við skyggnumst inn í starf Silju Elvarsdóttur sem er nýr meðstjórnandi Hjúpsins, en hún hefur ýmsa reynslu að miðlun umhverfismála til ungmenna ásamt því að stunda nám í umhverfisstjórnun og -miðlun í Svíþjóð. Við ræðum um hnattrænt jafnrétti, "ecosystem services" og kynnumst því hvaða hlutverki lýðræði og fræðsla spilar við miðlun hugmynda um náttúruvernd.
Getur húmor hjálpað okkur að nálgast ógnvænleg vandamál eins og hamfarahlýnun? Hvaða hlutverki gegnir grín þegar kemur að því að breyta samfélögum? Við fengum til liðs við okkur leikkonuna og grínistann Sögu Garðarsdóttur og baráttukonuna og húmoristann Katrínu Oddsdóttur til að varpa ljósi á þetta. Við ræddum allt frá sjálfsfróun til stjórnarskrár, frá borgaralaunum til bókasafna, kaffimál og keppni (og allt á háalvarlegum nótum, að sjálfsögðu...)
Njótið vel - Takk fyrir okkur Saga og Kata!
Til hvers að lýsa yfir neyðarárstandi og hvers vegna getum við ekki beðið? Halldór Reynisson, verkefnisstjóri umhverfismála kirkjunnar, er gestur Hjúpsins þessa vikuna og við ræðum um nýlega ákvörðun preststefnu um að lýsa yfir neyðarástandi, um forystusauði og ráðsmennsku yfir jörðinni, kirkjur og vísindi.
Ættu íslensk stjórnvöld að lýsa yfir neyðarástandi vegna loftslagsmála? Skiljið eftir athugasemdir ykkar í komment!
Hjúpurinn veitir áheyrundum ráð um hvernig megi stemma stigu við loftslagsbreytingum og minnka umhverfissporið sitt. Þátturinn er einkum ætlaður lötum umhverfissinnum eða þeim sem eiga erfitt með að taka af skarið og ráðast í umfangsmiklar lífsstílsbreytingar!
Gestur Hjúpsins þessa vikuna er Dr. Snjólaugu Ólafsdóttur sjálfbærniráðgjafi en hún hefur nokkur óvænt en skemmtileg ráð til að takast á við loftslagsvandann.
From the publisher's feed