Hlaðvarp Heimildarinnar

Hlaðvarp Heimildarinnar

By HeimildinSociety & CultureNews
Download on the App Store

All Hlaðvarp Heimildarinnar episodes

  • Eitt og annað: Kannski ekki deigur dropi úr krananum
    Ef ekki verður gripið til aðgerða má búast við miklum skorti á ómenguðu neysluvatni á Kaupmannahafnarsvæðinu á næsta áratug. Þetta má lesa í nýrri skýrslu frá fyrirtækinu Hofor sem sér um öflun og dreifingu orku og vatns í Kaupmannahöfn og nágrenni.
    6 min
  • Samtal við samfélagið #12: Áherslur og skipulag verkalýðsfélaga
    Hvergi á byggðu bóli er stéttarfélagsaðild eins mikil og Íslandi en um 90% launafólks hér á landi tilheyrir stéttarfélagi. Styrkur verkalýðshreyfinga hérlendis sem erlendis ræðst hins vegar ekki einungis af fjölda félagsbundinna meðlima heldur ekki síður af áherslum, skipulagi og því hvernig verkalýðsfélög kjósa að beita sér.
    55 min
  • Samtal við samfélagið #11: Sjálfhverfa samfélaga og þjóðernishyggja í heimsfaraldri
    Stundum æxlast lífið þannig að hlutir frestast og það á svo sannarlega við um hlaðvarp vikunnar. Í því ræðir Sigrún við Bjarka Þór Grönfeldt sem var lektor við Háskólann við Bifröst þegar viðtalið var tekið vorið 2023. Síðan hafa leiðir Bjarka legið í ýmsar áttir, en hann var meðal annars aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar fyrrverandi Félags- og vinnumarkaðsráðherra en vinnur nú sem sérfræðingur í samfélagsmálum hjá Landsvirkjun. Bjarki lauk námi í stjórnmálasálfræði frá Háskólanum í Kent í desember 2022, en hann hefur meðal annars skoðað sjálfhverfu, ófrjálslyndi og hvernig þjóðernishyggja hafði áhrif á stuðning við lýðheilsuaðgerðir á tímum heimsfaraldurs. Í hlaðvarpinu ræða þau Sigrún um námsferil hans, stjórnnmálasálfræði og helstu rannsóknaráherslur.
    55 min
  • Eitt og annað: Með ömmu um hálsinn?
    Dönsk kona hefur sent danska þinginu tillögu sem gerir ráð fyrir að nota megi ösku látinna Dana í skartgripi. Lögum samkvæmt er það bannað í Danmörku en heimilt í mörgum löndum. Margir Danir vilja rýmri reglur varðandi jarðneskar leifar ættingja.
    7 min
  • Þjóðhættir #64: Draumar, huldufólk og rökkrin: Þjóðsagnir íslenskra kvenna
    Gestur þáttarins er Júlíana Þóra Magnúsdóttir doktor í þjóðfræði, en doktors rannsókn Júlíönu bar yfirskriftina „Með eigin röddum: Sagnahefðir íslenskra kvenna undir lok nítjándu aldar og í byrjun tuttugustu aldar“. Í þættinum segir Júlíana frá rannsókn sinni, en hún greindi sagnir 200 kvenna, sem varðveittar eru í hljóðritasafni Árnastofnunnar. Þetta eru sagnir sem Hallfreður Örn Eiríksson safnaði þegar hann ferðaðist um landið. Hann safnaði þó ekki bara sögnunum heldur líka mikilvægum upplýsingum um samhengi þeirra, sem Júlíana greindi í rannsóknum sínum.
    43 min
  • Þjóðhættir #63: Flateyri, sveppasósur og svæðisvitund
    Gestur þáttarins er Sæbjörg Freyja Gísladóttir þjóðfræðingur. Sæbjörg Freyja er búsett á Flateyri sem var vettvangur meistararitgerðar hennar í þjóðfræði. Þar rannsakaði Sæbjörg hvað felst í svæðivitund þeirra sem búsettir eru á Flateyri og samskipti ólíkra hópa samfélagsins. Sæbjörg hefur enn gaman að því að velta fyrir sér samfélaginu sem hún býr í og hvað hefur áhrif á viðhorf íbúanna þar.
    36 min
  • Eitt og annað: 100 ára og enn að stækka
    Árið 1920, þegar dönsk stjórnvöld keyptu landskika á Amager-eyjunni við Kaupmannahöfn, grunaði líklega fáa að þarna yrði innan fárra áratuga fjölmennasti vinnustaður í Danmörku. Kastrup-flugvöllur er 100 ára.
    8 min