Hlaðvarp Heimildarinnar

Hlaðvarp Heimildarinnar

By HeimildinSociety & CultureNews
Download on the App Store

All Hlaðvarp Heimildarinnar episodes

  • Þjóðhættir #62: Hulduverur, safnastarf og köldu ljósin Hafnafirði
    Gestur þáttarins er Svanhvít Tryggvadóttir þjóðfræðingur sem starfar um þessar mundir á Byggðasafni Hafnarfjarðar. Svanhvít lýsir leið sinni í þjóðfræðina og segir frá BA ritgerð sinni þar sem hún rannsakaði sagnaheim Vestur Íslendinga, hvaða þjóðtrúarverur fluttust yfir hafið og hvernig þeim vegnaði á nýjum stað.
    29 min
  • Þjóðhættir #61: Lundar, geirfuglar og sjálfsmynd þjóðar
    Gestur þáttarins er Katla Kjartansdóttir, doktorsnemi í menningarfræði við Háskóla Íslands. Katla segir frá leið sinni í þjóðfræðina og meistaranámi í þjóðernisfræðum við Edinborgarháskóla en þjóðernisfræðin er systurfag þjóðfræðinnar þar sem alþjóðasamskipti og þjóðernissjálfsmyndir eru veigamikill þáttur.
    24 min
  • Eitt og annað: Ólátabelgurinn á Amalienborg
    Átján ára afmæli þykir að öllu jöfnu ekki ástæða til mikilla hátíðahalda. Öðru máli gegnir þó ef um er að ræða danska prinsessu. Isabella, dóttir dönsku konungshjónanna, er orðin 18 ára og komin í tölu fullorðinna.
    10 min
  • Eitt og annað: Sendu skip til Grænlands
    Hinn 10. apríl 1940, daginn eftir að Þjóðverjar hernámu Danmörku, sendi bandaríska strandgæslan skip til Grænlands. Um borð voru James K. Penfield, nýútnefndur ræðismaður, og fulltrúi Rauða krossins. Síðar það sama ár hreyfði varautanríkisráðherra Bandaríkjanna hugmyndinni um bandarískar herstöðvar í landinu. Áhugi Bandaríkjamanna á Grænlandi er sem sé ekki nýr af nálinni.
    12 min
  • Flækjusagan: Stórveldi Atatürks
    Ill­ugi Jök­uls­son fjallar um Mu­stafa Kemal Atatürk sem var stór­merk­ur stjórn­mála­mað­ur í Tyrklandi og sann­kall­að­ur „fað­ir Tyrkja“. En nú þeg­ar Er­dog­an for­seti ætl­ar að stíga næsta skref og koma Tyrkj­um aft­ur í hóp stór­velda ger­ir hann það ekki síst með því að snið­ganga arf­leifð Atatürks.
    16 min
  • Eitt og annað: Rauðu póstkassarnir og frímerkin hverfa
    Um næstu áramót hættir danski pósturinn að taka á móti og dreifa bréfum eins og hann hefur gert í rúm 400 ár. Ástæðan er sú að bréfasendingar hafa að miklu leyti lagst af og tekjurnar af þjónustunni að sama skapi dregist saman. Rauðu póstkassarnir og frímerkin hverfa.
    8 min
  • Á vettvangi #7: Hver mínúta mikilvæg
    Í neyðartilvikum getur hver mínúta skilið á milli lífs og dauða - sérstaklega þegar um hjartastopp er að ræða. Þegar hjartahnoð hefst strax aukast lífslíkur sjúklingsins verulega. Þrátt fyrir þetta treysta sumir sér ekki til að veita aðstoð á vettvangi á meðan sjúkrabíll er á leiðinni á vettvang. Í seinni hluta þáttarins ræðum við mikilvægi þess að kunna fyrstu hjálp og hvernig rétt viðbrögð allra á vettvangi geta bjargað mannslífum.
    Við höldum áfram ferð okkar um bráðamóttökuna og kynnumst fjölbreyttum verkefnum starfsfólksins.Við heyrum sögu fjölskyldu sem starfar saman á bráðamóttökunni og hjónum sem starfa bæði sem þyrlulæknar. Við fylgjumst með þyrlunni lenda með fárveikan sjúkling við bráðamóttökuna og þegar sjúklingur með blóðtappa þarf tafarlausa aðstoð.
    Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.
    1 hr 6 min