Share Hundsvit
Share to email
Share to Facebook
Share to X
Við erum ansi heppin hér á landi með úrval hundaíþrótta þrátt fyrir lítið samfélag. Það er mikill kraftur í mörgum ólíkum deildum, bæði innan HRFÍ og utan þess þar sem íþróttir og lífstílsvinna er í boði í formi námskeiða, prófa eða einfaldlega félagsskaps. Við fórum yfir allt mögulegt sem í boði er í þessum þætti!
Gelding rakka er alltaf reglulega til umræðu víðs vegar í hundasamfélaginu. Hversu snemma er of snemmt? Lagar þetta raunverulega hegðunarvandamál? Breytist geðslagið í hundinum mínum?
Allt þetta og meira til í þætti vikunnar!
Er þessi "5 mínútur fyrir hvern mánuð" regla sönn? Er ég og sein að byrja að þjálfa hundinn í hlýðni hálfs árs gamlan? Hvað má útivistin vera löng?
Við ræðum þetta og fleira í þætti vikunnar þar sem þjálfun ungra hunda var rædd í þaula!
Það er alltaf eitthvað sem maður hefði viljað vita fyrr þegar það kemur að uppeldi hunda, og hér eru nokkrir þættir sem við hefðum glaðar vilja vita áður en við tókum við hundunum okkar sem hvolpum!
Það er fátt skemmtilegra en að leyfa hundunum okkar að hitta vini sína, en geta allir hundar verið vinir? Þurfa allir hundar að vera vinir? Er í lagi að eiga hund sem vill ekki heilsa, og jafnvel geltir á aðra hunda?
Umræðuefni þáttarins er akkúrat þetta, þurfum við að leyfa hundunum okkar að hitta alla, og getum við verið að valda öðrum vandræðum og jafnvel stórum erfiðleikum ef við göngum upp að næsta hundi án leyfis?
Í þessum þætti tókum við fyrir fyrstu hundabókina en vonandi verða þættir sem þessir fleiri enda alltaf gaman að grúska í góðum bókum!
Í þetta skipti tókum við fyrir bókina Meet Your Dog en bókin tekur saman LEGS leiðarann sem hjálpar okkur að líta réttum augum á þarfir og hegðun hundsins okkar frá fjórum mismunandi þáttum sem hafa áhrif á hann.
Eitthvað sem allir hundaeigendur ættu að hafa á bak við eyrað!
Í þætti vikunnar tókum við saman litlar er mjög mikilvægar lífreglur sem gott er að hafa í huga frá upphafi uppeldisins og gott er að minna sig á reglulega í gegnum æviskeið hundsins!
Í þætti vikunnar förum við yfir allt sem tengist undirbúningi dýralæknaheimsókna, tíðni þeirra og almennri "viðhaldsskoðun" hundanna okkar. Við ræðum það hvernig við getum gert heimsóknina bærilegri fyrir dýr og menn, tilgang bólusetninga, ormalyfja og árlegra vitjana.
Nú klárum við yfirferðina yfir tegundirnar en í þessum þætti förum fyrir yfir sögu og einkenna hundanna í grúppum 7-10. Sem fyrr förum við einnig yfir einkennandi þjálfunaratriði þessara hunda.
Í kjölfar þáttarins um það hvernig hundar læra ákváðum við að taka dýpri umræðu um virka skilyrðingu, möguleikana fjóra til þess að styrkja eða letja hegðun og hvernig virk skilyrðing er notuð við þjálfun, óháð því hvaða þjálfunarfræði fólk aðhyllist.
The podcast currently has 16 episodes available.