Jöklarannsóknarfélag Íslands 70 ára.
Til að Jöklarannsóknarfélagið geti rannsakað jökla þarf tvennt að vera til staðar: húsaskjól og tryllitæki. Það þarf alvöru græjur til að komast upp á jökul og ef eitthvað bilar er nauðsynlegt að hafa vana einstaklinga með í för sem hafa gaman af góðu basli. Við höldum áfram að kynna okkur starfsemi Jöklarannsóknarfélags Íslands og ræðum við formenn skála- og bílanefndar, þá Sverri Hilmarsson og Sigurð Vignisson.