Fimm þátta röð um innflytjendur og flóttamenn
eftir Viðar Eggertsson.
Íslendingar eru að upplagi þjóð sem kom að mestu frá Noregi seint á 9. öld á flótta undan skattheimtu Haraldar hárfagra konungs og landþrengsla Í heimalandinu. Þeir settust að á þessari harðbýlu eyju við ysta haf og sagnir eru til um að þeir hafi stökkt írskum munkum, pöpum, sem þar voru fyrir á flótta frá landinu. Síðan þá hafa Íslendingar leitað betra lífsviðurværis í öðrum löndum, þegar harðnað hefur á dalnum heima, með ránum eða búsetuflutningum.
Farið er stuttlega yfir þessa sögu. Viðmælendur eru: Guðmundur Hálfdanarson, professor í sagnfræði; Luciano Dutra, þýðandi og túlkur; Friðrik Þór Guðmundsson, blaðamaður og Unnur Dís Skaptadóttir, prófessor í mannfræði.
(Frá 2017)