Í þessum þætti heimsækjum við Rauða krossinn í Reykjavík. Rauði krossinn er hluti af stærstu mannúðar- og hjálparsamtökum heims. Allt starf Rauða krossins miðar að því að bregðast við og aðstoða þar sem neyðin er mest. Rauði krossinn á Íslandi hlúir að Íslendingum sem minna mega sín og standa höllum fæti í lífinu. En í þessari heimsókn okkar hugum við að starfseminni eins og hún snýr gagnvart þeim sem hingað leita, innflytjendur, hælisleitendur og flóttafólk. Það er sá hópur fólks hér á landi sem líklegast á engan annan að til að leita til.
Viðmælendur í þættinum:
Anna Lára Steindal, verkefniastjóri í málefnum flóttafólks hjá Rauða krossinum í Reykjavík, Þórir
Guðmundsson, forstöðumaður Rauða krossins í Reykjavík og Davor Purusic, lögfræðingur málefna hælisleitenda á Hjálpar- og mannúðarsviði Rauða krossins.
Umsjón: Viðar Eggertsson.
(Frá 2017)