Allt lék á reiðiskjálfi þegar bolvískir sjómenn vitjuðu báta sinna sunnudagsmorguninn 4. febrúar 1968. Eitt versta veður sem sést hefur í Ísafjarðardjúpi hafði þá geisað um nóttina og átti veðurofsinn greiða leið í óvarða höfnina. Á meðan sjómennirnir gerðu allt til að bjarga sér og bátunum sátu áhyggjufullir aðstandendur heima og hlustuðu á angistarfull samskipti á bátabylgjunni.