Á meðan áhöfn Óðins leitaði Heiðrúnar í Ísafjarðardjúpi barst henni tilkynning um strand Notts County. Ástandið á illa búinni bresku áhöfninni versnaði með hverri mínútunni sem leið og þurftu Óðinsmenn sjálfir að leggja sig í hættu við björgunina. 36 tímum eftir að áhöfn Ross Cleveland hafði verið talin af fann smaladrengur í Seyðisfirði mann sem átti eftir að verða lifandi goðsögn.