Fríhöfnin

Innrásin í Grjótaþorp: Frakkar á faraldsfæti 1/3


Listen Later

„...En byltingin? Það verður aldrei bylting í þorpi. Uppreisnarmennirnir hrökkluðust suður“. (“Verkfallið“ úr “Þorpinu“ eftir Jón úr Vör). Þriggja þátta röð.
Í kjölfar stúdentauppreisnarinnar í París árið 1968 fengu nokkrir Frakkar þá flugu í höfuðið að fljúga með farfuglunum til Íslands. Grjótaþorpið var í niðurníðslu og Reykjavík með það á prjónunum að valta yfir þorpið, leggja hraðbraut í gegn og byggja fleiri Moggahallir. Ungir Fransmenn settust þarna að tóku þátt í þeirri húsverndarstefnu sem spratt upp á þessum árum, sem varð til þess að gömlum húsum var bjargað. Í þessari þáttaröð heyrum við raddir sem spretta fram úr veggjum húsanna, sumar hafa sest hér að, aðrar eru horfnar á braut, en lifa enn í okkar hjörtum.
Umsjón: Sverrir Guðjónsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

FríhöfninBy RÚV