
Sign up to save your podcasts
Or


Í fyrsta þætti nýrrar seríu, sem mun fjalla um árnýöld (árin 1500–1800) ræðir Jón Kristinn við Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóra og hagfræðiprófessor, um siðaskiptin og utanlandsverslun á Íslandi.
Jón Kristinn ræðir við Bergsvein Birgisson um tengsl rostungsveiða og landnáms Íslands. Lagt er út af bók Bergsveins, Leitin að svarta víkingnum.
Jón Kristinn ræðir við Steinunni Kristjánsdóttur, prófessor í fornleifafræði, um klausturhald á miðöldum.
Jón Kristinn ræðir við Sif Ríkharðsdóttur um rómönsk áhrif í íslenskum bókmenntum á miðöldum; riddarasögur, rómönsur og annan rómantískan skáldskap.
Patreon.com/Islandssagan
Jón Kristinn ræðir við Ármann Jakobsson um miðaldabókmenntir, eddukvæði, dróttkvæði, Íslendingasögur og ýmislegt fleira.
Patreon.com/Islandssagan
Jón Kristinn ræðir við Árna Daníel Júlíusson um landbúnað á miðöldum.
Patreon.com/Islandssagan
Jón Kristinn ræðir við Helga Þorláksson um utanlandsverslun Íslendinga á miðöldum; vaðmál, skreið, þýsku öldina og ensku öldina. Þetta er fyrri þáttur af tveimur um hagsögu Íslands á miðöldum.
Jón Kristinn ræðir við Sverri Jakobsson um Sturlungaöld, mesta ófriðartíma Íslandssögunnar.
patreon.com/Islandssagan
Þjóðveldisöld, 930–1262/4, er sveipuð dýrðarljóma í Íslandssögunni.
Jón Kristinn ræðir við Viðar Pálsson, prófessor í sagnfræði, um hugtakið þjóðveldisöld og stjórnmál og réttarfar á Íslandi fyrstu þrjár aldirnar eftir landnám.
patreon.is/Islandssagan
From the publisher's feed