Menntavarp – Ingvi Hrannar

Íslendingar geta ekki sungið sér til gagns – Ef Eurovision hefði sömu áhrif og PISA


Listen Later

Í morgun vaknaði ég við þær fréttir að Ísland hefði lent í neðsta sæti allra þátttökuþjóða í Eurovision. Ísland hefur ekki komist upp úr forkeppninni síðustu 4 ár og við höfum verið með lélegasta árangur norrænna þjóða síðan um aldarmót.
Þrátt fyrir það eru engar fyrirsagnir í blöðunum þar sem ráðamenn þjóðarinnar, sveitarstjórnarfólk, skólastjórar og foreldrar eru að benda á að Íslendingar geti einfaldlega ekki sungið sér til gagns.
Ég hefði haldið að fréttirnar myndu líta svona út:
En svo var ekki…. ég þurfti að búa þessa frétt til.
Fyrirsögnin á mbl var svona:

Ég tísti um málefnið í morgun og ákvað að fara lengra en þeir 280 stafir sem Twitter leyfir mér og skrifa smá blogg um af hverju við ættum að hafa áhyggjur….þó Eurovision sé, rétt eins og PISA eða samræmd próf, aðeins lítill og afmarkaður mælikvarði á getu landa og hæfni íbúa þeirra.

Áhyggjur ef það er lestur, stærðfræði eða vísindi en ekki ef það er sköpun og samvinna…
Það kemur mér á óvart í ljósi þess að þegar niðurstöður í alþjóðum læsiskönnunum eru kynntar og Íslendingar eru rétt við meðaltal á meðal OECD landa eru fyrirsagnirnar á þann veg að hér sé allt að fara á versta veg. Læsisátak sett í gang og hundruðir milljóna settar í það að efla læsi og hraðlestur barna á Íslandi. Læsisráðgjafar ráðnir á Menntamálastofnun, ráðherra ferðast þvert um landið og öll Sveitarfélög skrifa undir svokallaðan Læsissáttmála þar sem áhersla er á að þau setji sér læsisstefnu og nýti töluleg gögn til að efla skólastarfið en frekar.
Fyrirsagnir og fréttir blaðanna eru svona eftir PISA og samræmd próf:

Við getum verið sammála um það að lestur og stærðfræði eru mikilvægar greinar. Þær þjálfa ákveðna hluti sem eru mikilvægir en eru bara ekki nóg. Rannsóknir sýna samt að mikilvægasta færni í atvinnulífi framtíðar sé einmitt færnin að geta skapað og unnið með öðrum. Færni sem þjálfast hvað best í skapandi greinum eins og leiklist, tónlist, myndlist og dansi.

Það ætti að valda okkur áhyggjum að hæfni þjóðarinnar í skapandi greinum eins og tónlist og dansi (eins og Eurovision mælir) sé ekki betri en þetta…. sérstaklega því að menn­ing­in og hinar skap­andi grein­ar og fram­leiðsla þeim tengd er nú meðal öfl­ug­ustu at­vinnu­greina Evr­ópu.
„Töl­urn­ar ljúga ekki. Þær sýna að hinar skap­andi grein­ar eru í dag leiðandi í efna­hags­vexti og fjölg­un starfa. Það er eng­in ímynd­un held­ur niðurstaða vandaðra kann­ana.”
-Androulla Vassili­ou, menn­ing­ar- og mennt­un­ar­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins
Ef Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva væri Upplestrar- eða hraðlestarkeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva væru fyrirsagnirnar á annan veg. Líklega eitthvað eins og: „Ísland með versta upplesturinn” / „Íslendingurinn las hægast af öllum.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Menntavarp – Ingvi HrannarBy Ingvi Hrannar Ómarsson