Sign up to save your podcasts
Or

Dr. Hafrún Kristjánsdóttir, Prófessor, er forseti íþróttafræðideildar. Rannsóknir hennar hafa meðal annars fjallað um geðheilsu íþróttafólks, sálfræðilega færni og andlegan styrk í íþróttum ásamt afleiðingum höfuðhögga.Hafrún hefur unnið mikið með öflugasta íþróttafólki landsins en hún var sálfræðingur íslenska keppnisliðsins á Ólympíuleikunum í London 2012, í Ríó 2016 og í Tokyo 2021. Við settums niður með Hafrúnu og ræddum um íþróttafræðideildina og rannsóknarverkefni sem hún er að vinna að.
UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI
Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.
UM ÍÞRÓTTARABBIÐ
Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.
UM HR HLAÐVARPIÐ
HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]).
By Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik UniversityDr. Hafrún Kristjánsdóttir, Prófessor, er forseti íþróttafræðideildar. Rannsóknir hennar hafa meðal annars fjallað um geðheilsu íþróttafólks, sálfræðilega færni og andlegan styrk í íþróttum ásamt afleiðingum höfuðhögga.Hafrún hefur unnið mikið með öflugasta íþróttafólki landsins en hún var sálfræðingur íslenska keppnisliðsins á Ólympíuleikunum í London 2012, í Ríó 2016 og í Tokyo 2021. Við settums niður með Hafrúnu og ræddum um íþróttafræðideildina og rannsóknarverkefni sem hún er að vinna að.