Sign up to save your podcasts
Or

Íþróttafræðideild býður upp á tvíþætta meistaragráður í íþróttavísindum og stjórnun í samvinnu við Háskólann í Molde í Noregi. Kristján Halldórsson átti samtal við Fannar Helga Rúnarssson sem tók tvö ár í íþróttastjórnun í Molde og starfar núna í KSÍ, og Hafþór Hauk Steinþórsson sem er að klára sitt fyrsta ár í Molde í vor og tekur seinna árið hér heima á Fróni.
Þeir ræða um námið og hvernig er að búa í Molde sem er mikill íþróttabær.
UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI
Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.
UM ÍÞRÓTTARABBIÐ
Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.
UM HR HLAÐVARPIÐ
HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]).
By Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik UniversityÍþróttafræðideild býður upp á tvíþætta meistaragráður í íþróttavísindum og stjórnun í samvinnu við Háskólann í Molde í Noregi. Kristján Halldórsson átti samtal við Fannar Helga Rúnarssson sem tók tvö ár í íþróttastjórnun í Molde og starfar núna í KSÍ, og Hafþór Hauk Steinþórsson sem er að klára sitt fyrsta ár í Molde í vor og tekur seinna árið hér heima á Fróni.