HR Hlaðvarpið

Íþróttarabb HR // 4. þáttur: Ingi Þór Einarsson og Gunnar Páll Jóakimsson


Listen Later

Ingi Þór Einarsson, lektor við íþróttafræðideild HR, og Gunnar Páll Jóakimsson, stundakennari við íþróttafræðideild HR, settust niður í Íþróttarabbi HR og ræddu þolþjálfun á breiðum grundvelli. Auk þess að vera fræðimenn með áratugareynslu í sínum fögum hafa báðir þjálfað sömuleiðis um áratugaskeið, Ingi Þór einkum í tengslum við sund og Gunnar Páll hefur sérhæft sig í hlaupum. Íþróttarabbið er ný þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu. Það var Stefán Hrafn Hagalín hjá samskiptateymi HR, sem spjallaði við Inga Þór og Gunnar Pál.

Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.

Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.

HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]). Framleiðendur hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HR HlaðvarpiðBy Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University