Á tónsviðinu

Johann Christian Bach


Listen Later

Leikin er eftir Johann Christian Bach, yngsta son Johanns Sebastians. Johann Christian var virtur tónsmiður og hljómborðsleikari. Hann settist að í Englandi árið 1762 og bjó þar til dauðadags. Árið 1764 kom Mozart-fjölskyldan í tónleikaferð til London, en Wolfgang Amadeus Mozart var þá 8 ára gamall og orðinn frægt undrabarn. Meðan hann dvaldist í London sagði Johann Christian Bach honum til í tónsmíðum og Mozart mat hann ævinlega mikils sem tónskáld. Árið 1778, þegar Mozart var tutugu og tveggja ára gamall, samdi hann aríu við texta sem Johann Christian Bach hafði áður samið tónlist við: „Non so d´onde viene“. Mozart skrifaði föður sínum að hann væri mjög hrifinn af tónsmíð Johanns Christians, en hefði langað til að vita hvort hann gæti sjálfur samið eitthvað allt öðruvísi við sama texta. Aríur Johanns Christians Bachs og Mozarts verða báðar fluttar í þættinum. Umsjón hefur Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV