Bandaríski tónlistarmađurinn Johnny Cash gaf út nokkrar frábćrar plötur síđasta áratuginn sem hann lifđi og hann segir okkur sjálfur frá ţeim tíma í Rokklandi í dag, en Cash sem lést áriđ 2003 hefđi orđiđ 80 ára síđasta sunnudag ef hann hefđi lifađ.
Áriđ 1993 var Johnny Cash eiginlega búinn ađ vera. Hann var rúmlega sextugur og hafđi átt viđ veikindi á stríđa. Hann var án plötusamnings í fyrsta skipti á ćvinni og ţar sem hann söng opinberlega voru áhorfendur sífellt fćrri.
En ţá hefur samband viđ hann ţrítugur hip hop og metal upptökustjóri sem hafđi unniđ međ sveitum og listamönnum eins og Slayer, Red Hot Chili Peppers, Run DMC og LL Cool J. t.d. Hann heitir Rick Rubin. Hann segir Cash ađ hann vilji gera međ honum plötu ţar sem hann, röddin hans og gítarinn vćru í ađalhlutverki. Platan sem fékk nafniđ American Recordings kom út 1994 og áriđ eftir fékk hann Grammy verđlaun fyrir hana og var bođiđ ađ spila á Glastonbury tónlistarhátíđinni á Englandi ţar sem hann fékk konunglegar móttökur.
Nćstu árin hljóđrituđu ţeir Rick Rubin og Johnny Cash milli 100 og 200 lög og í ţađ heila hafa rúmlega 100 komiđ út. Um ţađ og síđustu ár Johnny Cash fjallar Ólafur Páll Gunnarsson í Rokklandi í dag.