Á þessu ári eru níutíu ár liðin síðan ljóðakverið „Jólin koma“ eftir Jóhannes úr Kötlum kom út árið 1932. Í þessari litlu bók birtust ýmsar persónur úr íslenskri þjóðtrú ljóslifandi: Grýla, jólasveinarnir og jólakötturinn. Það voru ekki aðeins kvæði Jóhannesar sem gæddu þessar persónur lífi, snjallar teikningar Tryggva Magnússonar settu líka mikinn svip á bókina. Þótt margt hafi breyst á Íslandi á 90 árum heldur bókin „Jólin koma“ alltaf vinsældum sínum og hefur verið gefin út 30 sinnum. Allmargir tónsmiðir hafa samið lög við ljóðin og nokkur þeirra verða flutt í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 29. des. Meðal tónsmiða sem koma við sögu eru Ingibjörg Þorbergs, Sigríður Jónsdóttir, Ingunn Bjarnadóttir, Jóhann Helgason, Árni Egilsson, Guðni Franzson og Magnús Pétursson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Jónatan Garðarsson og Halla Harðardóttir.