Á tónsviðinu

Jón Ásgeirsson tónskáld 90 ára


Listen Later

Þátturinn „Á tónsviðinu“ verður helgaður Jóni Ásgeirssyni tónskáldi, sem er níræður á þessu ári, en Jón fæddist 11. október 1928. Hann hefur samið margs konar tónverk svo sem kammertónsmíðar, hljómsveitarverk og óperur, en þekktasta tónsmíð hans er samt líklega sönglagið „Maístjarnan“ sem Jón samdi árið 1981 fyrir leikgerð Sveins Einarssonar af sögunni „Hús skáldsins“ eftir Halldór Laxness. Í þættinum verða leikin sönglög og kaflar úr verkum eftir Jón, meðal annars úr óperunum „Þrymskviðu“ frá 1974 og „Galdra-Lofti“ frá 1996. Flutt verður brot úr viðtali sem Þorkell Sigurbjörnsson tók við Jón árið 1969 og einnig úr öðru viðtali sem Ingibjörg Eyþórsdóttir tók við hann árið 2008, en Jón segir þar meðal annars frá því hvernig „Maístjörnunni“ var tekið þegar hann kom með lagið nýsamið 1981.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV