Á tónsviðinu

Jón Sigurbjörnsson leikari og söngvari


Listen Later

Á þessu ári eru 100 ár frá fæðingu söngvarans Jóns Sigurbjörnssonar. Jón var einn besti bassasöngvari Íslands á 20. öld og einnig lærður leikari, fór með mörg hlutverk bæði hjá Þjóðleikhúsinu og Leikfélagi Reykjavíkur auk þess sem hann leikstýrði ófáum verkum. Af óperuhlutverkum Jóns má nefna Sarastró í „Töfraflautunni" eftir Mozart 1956 og Basilíó í „Rakaranum í Sevilla" eftir Rossini, en það hlutverk söng Jón tvisvar, fyrst í Þjóðleikhúsinu 1958 og svo hjá Íslensku óperunni 1984. Einnig eru til margar hljóðritanir af flutningi Jóns á íslenskum einsöngslögum. Á leiksviði fór hann með fjölmörg hlutverk og lék til dæmis Skugga-Svein í samnefndu leikriti Matthíasar Jochumssonar þrisvar. Þá kannast margar kynslóðir íslenskra barna við rödd Jóns í hlutverki bangsapabba í „Dýrunum í Hálsaskógi" eftir Thorbjörn Egner, en sú hljóðritun var gefin út á hljómplötu árið 1966. Fjallað er um Jón Sigurbjörnsson í þættinum og fluttar hljóðritanir af leik hans og söng. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Jónatan Garðarsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV